12.2.2007 | 19:36
enn á ferð
búin að flytja bloggið,
nýja síðan er
fyrrihluti kennitölunar minna .blogspot.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2007 | 23:25
Manhattan
nú kemur mín útfærsla af þessum snilldar drykk
Setjið nokkra klaka í hristara
slumpp af cointreau
slumpp af vodka (tegund veljist eftir smekk eða einfaldlega sá ódýrasti í ríkinu)
tvöfaldur slumpp af trönuberjasafa (athugið: erfitt að finna þennan safa í verslunum)
mjög svo óvíst stórt slumpp af lime eða sítrónu safa, persónulega nota ég lime, hef samt ekki hugmynd hvernig þetta smakkast með sítrónu.
hristið og drekkið því það skiptir ekki hvernig þetta smakkast það er fullt af áfengi og maður sturtar þessu bara í sig 
bottoms up
Annka/Guðrún hel a.k.a. madam
P.S. skál fyrir Will smith skyrtulausum og bara á nærbuxum
og auka skál fyrir McDreamy
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.2.2007 | 23:04
Hugleiðing
Ég er orðin einstaklega stolt guðmóðir, daman var skýrð á sunnudaginn og hlaut nafnið Heiðbjört Ótta 
Ekki hægt að segja annað en að lífið gangi sinn vanagang þessa dagana, skóli, vinna og hitta fólk, geri ekki mikið annað
Hef samt verið að velta fyrir mér hvort maður þurfi ekki að fara að fá sér áhugamál, en hef ég efni á svoleiðis, eða vill einhver koma með í svoleiðis, eða á ég að fara alein og finna mér eitthvað sem ég hef alveg ein, svona fyrir utan þennan vanalega hóp sem ég umgengst
en hvað ætti ég svo sem að gera????
Þangað til ég kemst að niðurstöðu í þessu máli ætla ég að halda áfram að lesa í 753 blaðsíðna vampírubókinni minni sem ég er að dunda mér að lesa fyrir svefnin þessa dagana
AnnKa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.1.2007 | 14:08
yfirlit
Fyrst það er komin miðvikudagur held ég að það sé komin tími til að rifja upp atburði helgarinnar.
Á föstudaginn ætlaði ég að vera svaka dugleg og fara á bjórkvöld hjá félagsráðgjöfinni en endaði svo bara á sófanum hjá katý að horfa á X-factor
ég er alger leti haugur og fór snemma að sofa.
Laugardagurinn byrjaði á því að ég vaknaði snemma, (allt fyrir klukkan ellefu á morgnanna er svakalega snemma þessa dagana) og fór í vinnuna, bara til að komast að því að verslunarstjórin hafði ruglað vöktunum mínum og ég átti ekki að vera að vinna. Þannig að ég fór bara aftur heim og lagði mig, (enda massa þreytt því ég þurfti að vakna svo snemma). Eftir hádegi fór ég svo með katý að taka myndir að minnstu frænku í fyrsta sundtímanum sínum. Katý var á upptökuvélinni en ég á myndavélinni, held ég hafi tekið um 80 myndir af skvísunni
eftir það brunuðum við í vínbúðina og keyptum birgðir fyrir kvöldið. Við systurnar héldum okkur svo heima hjá katý og pöntuðum gott að borða, drukkum marga mismunandi kokteila og skot. Sátum svo í eldhúsinu að spila ólsen ólsen og hlæja mikið (strákarnir voru búnir að taka yfir stofuna til að spila. Svo seint um kvöld var skundað í bæinn til að dilla rassinum. Katý þrufti svo að fara heim, ekki beint snemma en of snemma fyrir mig, henni var orðið svo illt í fótunum. Eftir að hún fór djammaði ég með kristrúnu og unnusta hennar
og urðum við vitni að svolitlu sem mér var bara ekkert vel við
ÞAÐ VAR BIÐRÖÐ Á CELTIC!!!!! við fórum því bara á annan bar þar sem brynjar bauð strák upp í dans fyrir mig
tek það fram að ég bað hann ekki um það hann ákvað þetta alveg sjálfur, en takk brynjar. Þessi gaur var sko mighty fine
og kunni alveg að dansa. Eftir dansin héldum við á torgið þar sem skötuhjúin fengu sér eitthvað að borða og ég grenjaði úr hlátri þegar einhver stelpa sagðist ætla að fá sittlítiðafhvoru
ekki viss afhverju mér fannst þetta fyndið....
Sunnudagurinn fór svo í að vera pjonku þunn og fara í mat til mörtu og co. Þar ákvað mágur minn að opna rósavín sem var alveg svakalega áfengt og við vorum bara tvö um flöskuna
var svo komin heim í kotið um hálf tíu og sat upp í rúmmi að horf á imban og fikta í tölvunni (frekar hífuð og frekar fyndin lífsreynsla) 
ciao
AnnKa
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.1.2007 | 22:02
Forvitni
Eins og þið vitið þá er ég alveg svakalega forvitin og ýmislegt komið uppá vegna þess, bæði gott, slæmt og svo eitthvað sem skiptir ekki máli. En nú er ég að pæla
er ég OF forvitin??????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.1.2007 | 14:00
MSN :(
já nú er slæmt ástandið á heimilinu. Ég hef ekki komist á msn í viku, helvítis sæstrengur
það er sem sagt búið að takmarka aðgang stúdentagarðanna að erlendri nettenginu vegna viðgerðar á sæstrengnum sem háskólinn notar. SÖKKAR FEITT!!!!! ótrúlegt hvað maður er háður þessu msn, mér liður eins og hálfur hægri handleggurinn hafi verið tekinn af mér
Annars er fyrsta vikann í skólanum búin, sé fram á svona temmilega leiðinlega önn, ekkert sérstaklega spennandi að gera, bara endalaus verkefni og BA ritgerð.
mig langar að kasta fram smá spurningu, hver mörg ykkar vita hvaða dagur er á morgun ?? er ekki að spurja hvort þið vitið að það er 19 janúar.
ciao Annka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.1.2007 | 13:35
Lífið
Lífið er furðulegur hlutur, það hefur tilhneigingu til að láta fullt af ömurlegum hlutum gerast á sama tíma en svo nær það aftur jafnvægi með því að láta nokkra góða hluti gerast á sama tíma. alveg stór furðulegt, hvernig væri ef það kæmu góðir og slæmir hlutir á sama tíma en ekki bara of eða van. Það er samt hætta á því að þá myndi ég ekki pæla eins mikið í slæmu hlutunum, stundum þarf að pæla afhverju þeir gerðust og svo myndi ég ekki njóta góðu hlutanna eins mikið því slæmi hluturinn sem gerðist á sama tíma myndi skyggja á ánægjuna.
Fannst að ég þyrfti að koma með smá djúpa pælingu svona í byrjun árs 
Eitt sem ég skil ekki er þegar fólk hrúgast í ræktina í byrjun árs, hvað er eiginlega öðruvísi á þessum tíma, okei það er borðað mikið um jólin, fólk getur bara passað sig, sýnt smá sjálfsstjórn, ef það hefur agan eða bara hvað það sem þarf til að drullast í ræktina þá hlýtur það að hafa eitthvað í sér til þess að minnka átið um jólin.
Jólin hjá mér voru svo sem skítsæmileg, djamm, körfubolti, afmæli og meira djamm, las líka 4 bækur og horfði á mikið sjónvarp. Alltaf gott að slappa af.
Síðasta laugardag hélt ég kveðjupartý fyrir hana Berglindi mína
það var góð mæting og mikið stuð, komst að því að ég kem 20 manns inn í íbúðina á sama tíma
og það gerðist svolítið sem hefur aldrei gerst áður, á tímabili var ég eina einhleypa stelpan á staðnum, og allir kærastar voru á staðnum. Partý hjá mér eru venjulega stelputeiti, finnst svo gaman að fá skvísurnar mínar í djamm og spjall, en í þetta skipti mættu allri kærastar og kærustur mættu með þeim strákum sem var boðið. Þetta var alger snilld, allri að spjalla og skemmta sér. það tók samt engin eftir því þegar vinkona mín setti nýja tónlist á, eða allavega tók ég ekki eftir því, hún segir að diskurinn hafi meira að segja spilast tvisvar og engin minntist á það. 
ciao
AnnKa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.4.2006 | 12:58
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

vanadis
gaga