10.1.2007 | 13:35
Lífið
Lífið er furðulegur hlutur, það hefur tilhneigingu til að láta fullt af ömurlegum hlutum gerast á sama tíma en svo nær það aftur jafnvægi með því að láta nokkra góða hluti gerast á sama tíma. alveg stór furðulegt, hvernig væri ef það kæmu góðir og slæmir hlutir á sama tíma en ekki bara of eða van. Það er samt hætta á því að þá myndi ég ekki pæla eins mikið í slæmu hlutunum, stundum þarf að pæla afhverju þeir gerðust og svo myndi ég ekki njóta góðu hlutanna eins mikið því slæmi hluturinn sem gerðist á sama tíma myndi skyggja á ánægjuna.
Fannst að ég þyrfti að koma með smá djúpa pælingu svona í byrjun árs 
Eitt sem ég skil ekki er þegar fólk hrúgast í ræktina í byrjun árs, hvað er eiginlega öðruvísi á þessum tíma, okei það er borðað mikið um jólin, fólk getur bara passað sig, sýnt smá sjálfsstjórn, ef það hefur agan eða bara hvað það sem þarf til að drullast í ræktina þá hlýtur það að hafa eitthvað í sér til þess að minnka átið um jólin.
Jólin hjá mér voru svo sem skítsæmileg, djamm, körfubolti, afmæli og meira djamm, las líka 4 bækur og horfði á mikið sjónvarp. Alltaf gott að slappa af.
Síðasta laugardag hélt ég kveðjupartý fyrir hana Berglindi mína
það var góð mæting og mikið stuð, komst að því að ég kem 20 manns inn í íbúðina á sama tíma
og það gerðist svolítið sem hefur aldrei gerst áður, á tímabili var ég eina einhleypa stelpan á staðnum, og allir kærastar voru á staðnum. Partý hjá mér eru venjulega stelputeiti, finnst svo gaman að fá skvísurnar mínar í djamm og spjall, en í þetta skipti mættu allri kærastar og kærustur mættu með þeim strákum sem var boðið. Þetta var alger snilld, allri að spjalla og skemmta sér. það tók samt engin eftir því þegar vinkona mín setti nýja tónlist á, eða allavega tók ég ekki eftir því, hún segir að diskurinn hafi meira að segja spilast tvisvar og engin minntist á það. 
ciao
AnnKa

vanadis
gaga
Athugasemdir
Já þetta var grilliant partý! Ég tók reyndar eftir diskaskiptunum en það er kannski af því ég var svo mikið í eldhúsinu - að gera Mojito
Berglind Inga, 10.1.2007 kl. 16:48
Velkomin á blog.is
gógó, 10.1.2007 kl. 19:43
djöfullinn... þarf ég þá að færa mig líka? finnst ekkert smá pirrandi að þurfa alltaf að gera netfang 2svar til að kommenta hjá ykkur! en já til hamingju með nýju síðuna:)
PS: ertu laus á fimmtud.kvöld?
Kristrún (IP-tala skráð) 11.1.2007 kl. 00:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.